Hann klæddi sig vel
því það var komin vetur
og kalt í veðri

Hann fann ekki skóna sína
enda hálf sofandi ennþá

Hann vildi að það
væri komið sumar

hann vildi að
síðasta sumar
væri komið aftur

hann skimaði um forstofuna
fann skó

strigaskó númer 39

ekki hans
heldur hennar

sem fór í haust

sem var alltaf svo kalt á fótunum
Gberg