þú á torginu um morguninn
á bókhlöðunni um daginn
við eldhúsborðið um kvöldið
á kaffibarnum um nóttina

þú með kebab í rigningunni
þú í huganum endalaust

þú meiddir mig
-þessa sætu dökkhærðu manstu

en ég má ekki yrkja um þig
það væri alltof mikið
-fyrir okkur bæði

og því stoppa ég hér
ég vildi bara segja

að þú meiddir mig