sendi þau af stað út í fjarlægðina
ekkert þeirra hefur snúið aftur…

einhvers staðar áttavillt á rangli
leita þau ennþá slösuð og bitur…

eitt af öðru
þau týnast
og gleymast…

eitt af öðru
þau deyja
og gleymast…



litlu ástarljóðin
sem ég sendi
í leit að henni…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.