Þú ert ekki
eins og ég
þekkti þig

Þá var sál þín
hrein og
hjarta þitt
ómengað

Þitt svarta hjarta
liggur utan á
þér eins og
stór, opin gröf
og þú segir
hvers vegna
viltu mig ekki?

Ég segi
líttu til baka
og segðu mér
að þú sjáir
þína svörtu
slóð og sálirnar
fastar í þínum
svikavef

Þú ert ekki
það sem ég þekki
og ég drúpi höfði
er ég græt
þín grimmu örlög