Óttinn, hræðslan,
hvað get ég gert?
Ekki hringja í Lögguna,
Þá verð ég drepin.
Ef eitthvað kemur fyrir hann
þá verð ég drepin.
Mistök, stór mistök
hvernig átti ég að vita af þessu?
Ég var aðeins 15 ára
7 ár liðin.
Óttinn stendur ennþá.

Ég sé hann niðrí bæ.
Er ein, geng nálægt honum.
Löggan rétt hjá
hann sér hana ekki
kemur og ræðst á mig.

Læstur bak við lás og slá.
Örugg, en samt ekki.
Hvað gerist þegar hann losnar?
Ótti, hræðsla
Hvað get ég gert?

spotta/00