þú hverfur
smátt og smátt
svo enginn sjái

enginn má vita

seinustu sporin
brennimerkt í snjóinn
undan fótum þér

eitt andartak
í algjörri þögn
til minningar um fölnað bros

móttökunefndin
tekur á móti þér
glottandi
böðuð vítislogum

nú hvílir þú
í friði
með horn og hala

ósjáandi

farðu til helvítis
pungurinn þinn