Ímyndið ykkur draum, svo heitann og rauðann
svo góðann að þið mynduð aldrei vilja vakna,
draum sem fjallar bæði um lífið og dauðann,
draum sem hefur allt sem er mögulegt að sakna.

Ímyndið ykkur konu, sniðna að ykkar hjarta
með línurnar í lagi og sál af sama tagi,
konu sem getur gert svarta veröld bjarta,
sem fæddist til að elska og er góð í sínu fagi.

Ímyndið ykkur mann sem dó í hennar örmum
sem þræll sinnar vonar og fangi eigin hafta,
sem sá hana síðast með kristalstár á hvörmum
og horfir nú til himins án vona né krafta

Ímyndið ykkur draum sem alls hefur að sakna,
ímyndið ykkur svo að þið verðið að vakna.