stígur fram
skjálfandi hendur
og hjarta
sem slær
taktfast í tóminu

skýlir skeggjuðu andliti
með skildi
fúaviðurinn
tekur við höggunum

maður á menn
vopnum hlaðna
einn á móti heiminum

heiður og sæmd
að veði

lygnir aftur
langþreyttum augum
lútir höfði
taugatrekktur

að lokum
horfir upp
milli blóðugra fingra
samstundis
spjót í kviðnum
og endalaust fall

en hugrakkir menn
drepa hugrakka menn
einnig
þegar þeir falla

gráa veröld
grimmi heimur
gísli dáinn

nú falla engin vötn til dýrafjarðar lengur
þau falla öll með þé