8 967 149

Í löngum

silfurlituðum

kassa

með gati

við efri

brún

er hægt að

henda inn

og losa sig

við fortíðina.


Losa sig við

það sem eitt sinn

var hin fullkomna

fegurð

fágaðar línur og

fingurgómarnir gátu

ekki fengið

nóg af að

snerta.


Önnur eins

sköpun yrði vart

endurtekin,

oft hef ég setið

og starað á þig

vonað að þú

myndir yrða

á mig.


Eftir

að ég

vandist þér

get ég ekki

lifað

án þín.

En þú

hefur oft

í seinni tíð,

brugðist þegar

ég hef þurft

á þér að halda.


Nú horfi

ég á þig

inn um gatið

liggjandi í ílanga

silfurlitaða

kassanum

og ég spyr.

Gat ég nokkuð

annað gert?


Samt

er þetta vont

og erfitt

ég sakna þín

strax.

Ó hvað ég

elska þig

enn.


Og

áletrunin

á kassanum

er svo sorgleg

og köld.


-Endastöð

fyrir

ónýta

farsíma

og rafhlöður.