Um þetta leyti í gær
féll heimur minn saman
hjartað lagðist
inn í sjálft sig
og grét

Hún sagðist ekki viss
hvort þetta væri rétt
sagðist ekki
vilja vera
með mér

Ein af þessum stelpum
sem ég veit frá byrjun
að þær munu
reyna' að éta
mig upp

Hún gróf sig alveg innst
og ég óttaðist ei
að hún myndi
leyfa sér að
drepa