ef mennirnir kynnu að fljúga
og fiskarnir gætu gengið
þá myndu stjörnurnar
hrapa af himinum

ef fuglarnir tækju að hneggja
og öspunum yxi feldur
þá myndi tunglið-tunglið
kannski taka mig

ef ég myndi vakna einn morguninn
með sólskinið í andlitinu
þá væri það víst
að sólin hefði brotlent í breiðholtinu

ef þig langar
þá skal ég gefa þér hafið

upphafið