Drottning vafasamra dyggða!
Segðu mér,
hvenær hefur þú
horft á sál þína
afskræmda í spegli

líkt og Dorian á málverkið
forðum

og skorið á böndin
sem hamla þér
á göngu þinni,

mölvað stoltið
sem byrgir þér sýn
á veruleikann

og grátið það
að þú sért
brigðul-fallvölt-breysk

alveg eins og við hin?