Einhver sagði Tíminn læknar öll sár.
Ég spyr bara, í hvaða skóla fór Tíminn?
Mætti hann eitthvað?
lauk hann læknanáminu eða féll hann á prófunum.
Því hann kann ekkert að fara með sjúklinga sína.
Það má alveg fara aftur yfir það með honum hvernig sár eru saumuð,
hann saumar mín sár en
þau opnast alltaf aftur þegar ég er einn og hugsa um þig.
Þá blæðir mikið og ég sofna í blóði mínu.
Hann saumar á nóttunni á meðan ég sef
því mér er alltaf hætt að blæða þegar ég vakna.
Hann virðist ekki geta klárað þetta og lokað sárunum almennilega
Svo er ekkert hægt að biðja hann aðeins að staldra við
og svara einu né neinu varðandi vinnubrögðin,
hann bara veður áfram og heldur sínu striki.
Mér datt í hug að skipta um lækni en þá kom í ljós að
hann er sá eini sem sérhæfir sig í svona sárum.
En hann virðist eitthvað vera að koma til í þessu því
saumarnir eru farnir að halda betur eftir að líða tók á veturinn.
Kannski hættir bara að blæða alveg einn daginn,
og mér tekst að gleyma þér.

En til þess þarf skottulæknirinn að fara að vanda
vinnubrögðin.