Hún horfir
sljóum augum
út um gluggann
á gul laufblöðin
sem halda dauðahaldi
í titrandi greinar
trjánna.
“Ég skelf hér
einmanna og gömul
hrædd við lífið
sem ég elskaði
er ekki tímabært
fyrir okkur að
sleppa takinu”.