Hvað skal gera er sólin ei skín,
hvað á að gera er ljósið dvín.
Þá skal ég aðeins biðja til þín,
um það að sólin komi til mín.

Því örlögin öll eru í hendi þér,
en líf mitt allt veltur á mér.
Þú sérð um þetta og ég sé um hitt,
þá allir geta séð um sitt.

Þú gefur mér leyfi að velja mitt líf,
ég reisi mitt fjall og upp það klíf.
Því þannig geng ég lífsins veg,
mín lífsganga er yndisleg.