Brostið hjarta grær of hægt,
sál mín í molum.
Hamingjan er að brenna út,
eins og hún gerir vanalega.

Lífið hefur verið mér erfitt,
ég er bara strengjabrúða.
Sami leikþátturinn aftur og aftur,
önnur mótleikkona.

Þyrnastígur lífið er,
sárt er það að ganga.
Guð hvað gerði ég rangt af mér,
hvers þarf ég eiginlega að gjalda?

Ég hef ekki slæmt viðhorf til lífsins…lífið hefur slæmt viðhorf til mín.