Ég vildi ég gæti lifað þig
þú, draumur vökunnar.
Ég vild ég gæti snortið þig
líkt þú snertir mig.

Ástarleikir þínir
við undrandi nóttina
Einskorðaðir við svefn lifenda.

Haltu mér!
Án öryggis þíns fell ég.
Haltu mér!
Án þín dey ég.
Haltu mér!
og vertu ég meðan ég kvelst.

Draumur, meðan þú ert,
von. Ég elska þig.
Leyfðu mér að vita hver þú ert.

Er ég barn þitt,
þitt stundum gleymda barn.
Mundu er þú hverfur
mundu hver sækir þig
í hyldýpi myrkurs.
Mundu mig
vertu ég meðan ég kvelst.
Gríptu karfann!