Inn í drauminn, einmana svíf,
í allt annan heim, allt annað líf.
Syndin lokkar og leikur á mig,
lostinn kviknar, umlykur sig.

Leikurinn hafinn, þrá umvafinn,
tungan sleikir, skynsemi feykir.
Lykil að dyrum satans mér réttir,
eitraður koss sakbitið léttir.

Kemur þá siðgæðisengill drauma og er ekki rótt
vekur mig glottandi,
og býður góða nótt.