Það er spurning hvor sé betri, maðurinn eða simpansinn
hugsa ég á meðan ég stari í stór dökk stafræn augu þín
og þú starir kalt til baka og brosir,
ég vildi að ég brosti svona.
Við erum forrituð bæði tvö, hvor á okkar eigin steríla máta
spurning hvor sé betri ég eða þú?
Frá mér séð er það ekki spurning.
Þú stöðvar ekki þróunina.

Ef við róum saman út á haf gjört úr bínarí
skal ég veiða fyrir þig upplýsingar
sem myndu veita okkur gleði
í stað geldingar
og fróun
í stað dægradvalar.