Nudd tveggja ryðgaðra hluta
hljóðið ærandi
nýstir inn að beini

Við tvö skiljum
að við tvö erum
tvær einstakar gerðir

Ósambæranlegar tilfinningar
sem tærast upp í andleysi augnabliksins
og verða að þögn, tómi.