Heimur minn er þú
sál mín er þú
ég heyri hlátur,
móðir mín
þú elskar mig
skilyrðislaust
því ég er nýtt líf
innra með þér
barnið þitt.

Heimur þinn er ég
sál þín er ég
þú finnur spark,
barnið þitt,
ég elska þig
skilyrðislaust
því þú gafst mér líf
og ást
móðir mín.
—–