Fram og þrykkist til baka
á koparfeitum stálbita
Krómuð áferðin sleip
andlitið speglast og brosir kynferðislega

Makar puttunum uppúr hinu óleyfilega
nuddar þeim í kjólinn
Hvítur kjóllinn, mynd af handarfari
og útrétt höndin styður sig við heita vélina

Leggur eyrað uppvið ryðgaða áferð vélarbúksins
Hávaðinn á mörkum varanlegs skaða
Berfætt klýfur og sest klofvega á hana
Ein með ódauðlegu drífandi afli sem hamast bara fyrir augnblikið