Augu mín eru galopin,
en mig syfjar
Þúsund hugsanir hringsnúast í maganum á mér
um allt sem ég þrái og allt sem ég óttast
Ég kenni því sem angrar mig um
þessum endalausu litlu flugum
sem þurfa alltaf að suða í kringum höfuð mitt
og spilla gleðinni
En ég veit að ég get bara sjálfri mér um kennt
því ég gæti notað flugnanet
Ef flugnanet gæti nú bara
dugað á þig.
Ég er andvaka