Til vinar

Fyrir alla gleðina sem þú gafst mér
Fyrir alla hamingjuna sem þú færðir
Fyrir allar tilfinningarnar sem þú sýndir
Fyrir alla draumana sem þú lést rætast
Fyrir öll gleðitárin sem þú sýndir
Fyrir alla kaffibollana sem þú færðir mér
Fyrir allt sem þú gerðir með mér
Er ég þér afar þakklát

Þú hefur ávallt fært mér gleði
er mér leið sem verst
Þú hefur ávallt sýnt mér hamingju
eins og best er á kosið
Þú hefur ávallt opnað tilfinningar þínar
fyrir mér einni
Þú hefur ávallt feilt draumum þínum
aðeins með mér
Þú hefur ávallt grátið
þegar mér líður illa
Þú hefur ávallt sinnt
mínum innstu og ystu þörfum.
Þú hefur gengið í gegnum allt með mér
og það er mér allt.

Ég vil að við verðum saman að eilífu
ég vil þú færir mér
gleði,
hamingju,
tilfinningar,
drauma,
grátur og síðast
en ekki síst ást frá þér,
því ást þín er allt sem ég á.

Gulla