Skref
skref
skref
Þráinn stoppaði.
Hann ætlaði sér það ekki…
að stoppa
en samt gerð´ann það

Þytur breyttist í gargandi strætó
sem sleikti á honum nefið
Þráinn stóð stjarfur
Með roða í kinnum og bjánalegt glott á andlitinu
Hvers vegna andskotanum stoppaði hann?
Hvers vegna dokaði hann við?