Ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta
Gleðin vaknar innra með mér þegar þú ert nálægur

Eldur innra með mér kviknar
Lítill logi verður að báli
Sem brennur
Koss þinn er það eina sem ég þrái
Allt annað virðist lítilvægt

Þú ert svo fullkominn
Innra með mér er þessi tilfinning sem ég get ekki skilgreint
Góð en samt brennandi.