Myrkrið virðist vekja gömul sár,
varstu að hugsa um mig?
Með tímanum falla tár,
Týnd enginn skildi þig.

Veistu að líf mitt ég gæfi,
ef sæi þig aftur hlæja.
Óska þess í öræfi,
að minningin myndi nægja.