ég berst áfram
í spilltri víðáttu alheimsins
veð blóð systkina minna
upp að hnjám
og fylgi græðginni
blinduð af illsku
sem lagði kærleika hjarta míns
að velli
í vonlausri baráttu
fyrir friði