Datt í hug að fleygja þessu drasli hérna inn, en ætti kannski frekar að fleygja því í ruslið. allavega:

Brúnu augun þín
Fá mig til að hugsa um
Nóttina sem bíður mín
Með þig í örmum mér

Ég sá þig þegar rökkva tók
Augu þín lýstu allt upp
Hvernig sem að ég reyni
Ég finn þig ekki aftur

En augun lokka og laða mig að þér
Áfram ég reyni að hafa upp' á þér

Brúnu augun þín
Fá mig til að hugsa um
Nóttina sem ég missti
Er ég leitaði þín

Ég leitaði þín í þoku
Regnið féll á mig
Hvernig sem að ég reyndi
Ég gekk ekki fram á þig

En augun lokka og laða mig að þér
Áfram ég reyni að hafa upp' á þér

Brúnu augun þín
Fá mig til að hugsa um
Nóttina fyrir 30 árum
Þegar að ég missti þig

Loksins þó ég fann þig
Það var bara of seint
Tár mín blönduðust regni
Því þú varðst aldrei mín

En augun lokka og laða mig að þér
Áfram ég geymi minningu um þig