Þú sjálfumglaði maður
sem heldur að þú skiljir eftir þig
merkilega arfleið á spjöldum sögunnar.
Ég skal fullvissa þig um
að spor þin verða ekki varanlegri
en fótspor heiðargæsarinnar
í fyrstu snjóum haustsins.