Gelgjur blása kæruleysislega tyggjókúlur
byrja saman í boði SMS þjónustu Landsímans

hópast niðrí bæ
skemmtistaðir vilja sjá skilríki
skjálfa saman úr kulda
eru samt picky
frjósa ekki með hverjum sem er

eldheit ástarsambönd myndast
í þessari miðbæjarvosbúð

mamma situr í hitanum heima
einmanalegt kvöld endar líkt og hið síðasta
sofnar yfir Sænskri sakamálamynd á RUV
“True words are never spoken”