Guð er hættur að hlusta
á syndugan hræsnara eins og mig
enginn nema ég
heyrir raddirnar í höfði mér
sem kæfa hvor aðra líkt og andlitslausar raddir neðanjarðarlestar
Nú hef ég ekkert að hrópa á í neyð
nema eigin skynsemi
Getur skynsemin bjargað mér ef Guð er til?
En Hann ER til
Hann er bara í fýlu