Ég var stopp
á rauðu ljósi
enda er ég með eindæmum
heiðarlegur ökumaður,
nýstúdent í pallíettukjól
ákvað að misnota sér
heiðarleika minn
og skvapaði sér
að glugganum og brosti
þessu brosi sem
átti að bræða allt
og redda henni fari heim.

“hvert eruði að fara”?
spurði hún eins
og að henni kæmi það
eithvað við.
Hvað getur maður sagt
við nýstúdent í pallíettukjól
sem er búinn að tjalda
til sparibrosinu,
“við erum að leita okkur
að stúlku sem vill fara
með okkur heim að ríða”
fannst mér vera rétta svarið.
“ertu til í smá aksjón?”

Það kom grænt ljós
meðan hún hugsaði sig um.