Ég dreypi á blóði Krists
úr skelþunnu postulíni.
Með biturð á tungunni
og von um eilíft líf,
finn ég það storkna í hálsinum.

Ég trúi,
ég trúi ekki
á lygi.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.