Að þrjátíu árum liðnum
ber mig aftur á æskuslóðir
með blæðandi hjarta
og tómar hendur.

Ég legg bát mínum
við þínar strendur,
þar sem loguðu eldar
ástar og gleði
er askan ein eftir.