ADIOS

Eðli mannsins er stundum ljótt,
þá aðallega hve hann gleymir fljótt.

Fólki sem veit mun á réttu og röngu,
og stendur með honum í miklu og ströngu.

Fólki sem gefur visku og ráð,
sem stendur með honum og hvetur til dáð’(a).

Vináttan er blóm - þú gleymdir að vökva,
haltu bara áfram að skrökva.

Hjartað mitt varnirnar bætir stig fyrir stig,
og þangað til það lagast fær það verkjalyf.