Það var allt
spurning um tíma,
um það
hver færi næst

og þú
varst sá
útvaldi

sá sem
var rétt
rauða spjaldið

andlitin frosin
við húsið þitt
enginn þorir inn
orðin sem enginn
notar
visna í loftinu

þú ert farinn
og þögnin
smýgur milli
fölra vanga.



um frænda sem lést í bílslysi 25.ágúst 2003