Hef aldrei skellt neinum ljóðum hingað inn, en þessi staður hefur það framyfir ljóð.is að maður fær gagnrýni (hver lætur sig ekki dreyma um það). Ætla að prófa.
–

hinsegin ljóð (píslarvættiskvæði)

ég er homminn í krossinum
heiðinginn á omega
skáknördinn í skautaflokknum
og karlremban á kvennadeildinni
ég er ástralinn á ísafirði
húmanistinn í framboði
kaninn á kópaskeri
og valsarinn í vesturbænum

ég er kristur á krossinum
en ég dey ekki fyrir ykkur skítseiðin ykkar
heldur sjálfa mig og eilíft líf