Lífið er eins og að vera í bíl
sem brunar eftir hraðbraut lífsins
undir okkar stjórn.
Sumir komast á leiðarenda
hrakfallalaust
þó það springi öðru hverju.
Aðrir missa stjórnina á miðri leið
og falla í fang dauðans
þegar ferðin er rétt hafin.
Ökufærni skiptir ekki alltaf máli
heldur hvaða akrein þú lendir á
í lífinu.