Tímunum saman,
í töluðu orðunum
þar hef ég svamlað.

Þreytandi sundspretturinn sá.

Ég svamla þó bara líkt og svo oft áður,
yfir ýfið flóðið,
Skráma hér,skráma þar
skrámur allstaðar.

Mitt er Syndaflóðið,
mitt á meðal fallvaltra engla
sem falskir skarta sverðum á blóðrauðum vörum,
heyjandi orustur á hendur mér.

Hægi þó ekki sundið við það,
því í gegn um árin hef ég fundið það út
að sárin þau munu gróa…

Á endanum.