Stjörnurnar blika
á himninum.
Horfið upp og sjáið þær.
Þær tala til okkar,
tala sínum eigin tungum.
Þær eru að reyna að segja okkur eitthvað.

Horfið upp, hlustið,
hlustið á stjörnurnar.

Þið þyrftuð ekki
að fara í stríð,
stríð sem drepur allt
og líka stjörnurnar.

Þið þyrftuð ekki að
fara í stríð,
ef þið mynduð bara hlusta,
hlusta á stjörnurnar.