Smá peð,
mig langaði,
að læra á hljóðfæri
og foreldrar mínir
voru svo ánægðir
vilja minn.

Ég var skráður
í tíma hjá
orgelleikaranum
og gerð
framtíðarplön sem
innihéldu nótnabók,
statíf og hljóðfæri.

Ég var svo glaður
og kátur
þegar pabbi fór
til Reykjavíkur að
versla framtíð
mína í tónlist.

Ég velti því
stundum fyrir mér
hvað hann var að hugsa
í þessari ferð.

Vinur minn spurði
mig í dag hvort
ég spilaði á hlóðfæri,
ég sagði honum
að blokkflauta
væri ekki hljóðfæri.