Lengi
hef ég gengið
á þessum vegi
hnotið um steina
og hruflast á fótum
hnigið örmagna niður
en staðið upp aftur
ég hef litið um öxl
og séð að grasið
grær sjálfkrafa
yfir sporin mín
og það er enginn vegur
-til baka
eina leiðin er áfram veginn
það er enginn vegur-til baka.