Stígurinn minn
var grýttur
og torfær

í nótt
komu verkamenn
og malbikuðu
slóðina mína

sporin mín
og verksummerki
hurfu
undir
bundið slitlag

og þú
gekkst yfir
blautt malbikið
og festir spor þín
á veginum mínum
til frambúða