Döpur horfir
hún í regnvott strætið

í daufri skímu
ljósastauranna sér hún
blika á tár

eitt lítið tár
á leið til jarðar
þar sem það sameinast hinum
og fellur svo aftur

á öðrum stað
á öðrum tíma
Gberg