Það fræ
sem grætur
á myrku malblikinu,
það grætur
vegna skósólanna
sem hafa troðið það niður,
vegna bílanna
sem hafa ekið yfir það
á hraðri leið inní framtíðina,
vegna blómsins
sem fær ekki tækifæri
til að blómstra.

Því féll það fræ
í grýttan jarðveg,
þar sem næring er engin?
Þar sem sólin ei skín?
Hver veit
hver velur
hverjir lifa
og hverjir deyja án þess að lifa…