Hvað er fegurra
en marglitt blóm,
umvafið skini mánans
í faðmi jarðarinnar?

Eina nótt í apríl
beygði Guð sig niður
og hvíslaði því að mér,
leyndarmálinu.

Það er á milli mín og hans
og ég á að varðveita það;
þetta er leyndardómur sólar
eilífð í hjarta blóms.