Eitt blik af auga,
ein andartaks ákvörðun,
sker á örlagaþráðinn.

Hin ómerkilegasta athöfn;
sígarettan,
gemsinn,
kóksopi,
smá snakk,
nýtt lag, nýr diskur, ný stöð,
lítið augnsamband…

verður hin síðasta
þegar Dauðinn kemur keyrandi á móti.