Minn hugur ávallt fylgir þér,
þín augu draga mig að þér,
þitt aðdráttarafl svo magnþrungið.
Ég er fastur.

Á sporbraut um augu þín,
ég syndi um í hárum þér,
ég baða mig í geislum þínum.
Ég er frjáls.

Ég ylja mér við hjarta þitt,
ég leggst til svefns í örmum þínum,
ég strýk mér laust um vanga þinn.
Ég er heima.

Ég tek um hendur þínar,
ég kyssi enni þitt,
þú brosir blítt til lífsins.
Ég er með þé