Þú varst allt sem ég þarfnaðist
sálufélagi,elskhugi og vinur.
Líf mitt auðgaðist
af nærveru þinni.

Nýfædd ást og umhyggja
blómstraði í faðmi þínum.
Heitar hendur ,snertu
líkama minn
sem dýrmætt hljóðfæri.

Kossar þínir voru heitir
krefjandi,leitandi.
Silfurstrengur
sálar minnar
vafði sig um hjarta þitt
hlýtt og verndandi
ég gaf mig alla.